Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

29 May 2007

Klaustur Laugard. 26/5

Kjartan kom inn í lið VST í stað Hannibals, þar sem öxlin hans er enn í maski. Ég tók startið og fór fyrsta hringinn, gekk bara ágætlega en þegar ég kom inn eftir hann frétti maður að það átti að endurræsa kl. 13. Ég tók því það start líka. Við vorum búnir að ákveða að skipta um við bílinn hans Gulla í stað þess að skipta í pittinum (keppnisskapið alveg í lágmarki). Þegar ég kom til baka eftir fyrsta hring þurfti ég að rúnta um svæðið að leita að Kjartani því hann var við bílinn hans Gulla sem ég vissi ekkert hvar var. Kjartan tók svo næsta hring og ég svo þann þriðja sem var sá erfiðasti því að sandurinn var orðin mjög grafinn. Svo byrjaði að snjóa og rigna og ég ætlaði sko ekki að taka fleiri hringi en þegar Kjartan kom aftur var maður búinn að skipta um skoðun og sandurinn orðin mun betri í rigningunni. Síðustu tvo hringina var maður svo að berjast við krampa í löppunum og því erfitt að hjóla. Kjartan hafði tjáð áhyggur af þoli sínu en kom svo öllum á óvart og bætti alltaf tímann hjá sér eftir því sem lengra dró. Gulli og Bjarni keyrðu allan tímann á fullu en Gulli flaug á hausinn í síðasta hring, fékk krampa í löppina og kom ekki hjólinu í gang og var því dreginn síðasta spölinn. Þeir enduðu því með að hjóla einum hring meir en við.

23 May 2007

Álfsnes þriðjud. 22/5

Fór með Bigga og Hannibal upp í Álfsnes, Kjartan var kominn á staðinn. Biggi var að fara í fyrsta sinn í braut hér á Íslandi. Vorum frá c.a. 21-23 og höfðum allir gaman af nema Hannibal sem flaug vel á hausinn við stóra pallinn og var lemstraður eftir en vonandi óbrotinn þar sem hann á að hjóla á Klaustri á Laugardaginn. Spelkurnar hjá mér voru eitthvað að þvælast fyrir mér og þegar ég fór úr buxunum í skúrnum kom í ljós að mér hafði tekist að brjóta eitthvað stykki af þeim.

Bolalda

Fór með Hannibal í Bolöldu þar sem Einar og Andri voru líka að hjóla. Vorum ekki mjög lengi en höfðum gaman af að sjá Einar gera sýnar listir.

14 May 2007

Landeyjar laugard-sunndu 12-13/5

Fór með Heiðu á KTM 640 Adventure hjólinu hans Kjartans. Fórum af stað um hádegi á laugardag og fórum upp á Þingvelli, svo var haldið niður í Grímsnes og svo upp að Skálholti og fram hjá Laugarás, svo fórum við niður Flúðarveginn niður á hringveg og niður á Hellu. Þar horfðum við aðeins á endurokeppnina þar og fórum svo að Hvolsvelli og svo niður að bænum þar sem við gistum. Daginn eftir fórum við aðeins um Landeyjarnar og svo upp á hringveg og að Villingarholtshreppi þar sem við keyrðum suður og fórum svo í sund á Stokkseyri áður en við fórum heim. Frábært frí og snilld að vera á svona ferðahjóli. Spurning um að fá sér 950/990 sem næsta hjól.

Mosógryfjur fimmtud. 10/5

Fór hjólandi með Hannibal upp í gryfjur, hálftíma síðar komu Gulli og Kjartan. Við Hannibal tókum fyrst stökkæfingu og svo fórum við allir á hausinn nokkrum sinnum við að reyna endurohring sem Tóti hafði sýnt Hannibal nokkrum dögum áður.

Mosógryfjur sunnud 6/5

Fór með Kjartani, Gulli kom líka, vorum að reyna við ýmsar brekkur og að hjóla í litlu brautinni.