Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

18 October 2008

Bolalda föstud. 17/10

Fór með Hannibal í enduro upp í Bolöldu. Fórum af stað um þrjú úr vinnunni en vorum ekki komnir upp eftir fyrr en upp úr fjögur og hjóluðum til 6. Blautt en gaman. Fyrsti túr Hannibals síðan hann flaug á hausinn í maí 2006.

09 October 2008

Bolalda miðvikud 8/10

Fór með Kjartani upp í Bolöldu, hættum að vinna um 16 og vorum að hjóla til um 19 en þá var komið myrkur. Kjartan var í fyrsta sinn á nýja 250sxf hjólinu og fílaði það mjög vel. Brautin var fín, búið að breyta henni þannig að maður slapp við polla og veðrið frábært.