Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

28 August 2007

Bolalda föstud. 24/8

Fór á Kawanum með Gulla, Bjarna og félaga hans Bjarna upp í slóðanan við Bolöldu. Fórum yfir í hinn dalinn og niður brekkuna góðu. Svo var reynt við brekkuna en vantaði herslumuninn þegar ég prjónaði yfir mig efst í henni.

09 August 2007

Bolalda miðvikud. 8. ágúst

Fór með Kjartani á Kawanum hans Bigga upp í bolöldu, fórum á slóðana í roki og rigningu, vorum aðalega upp í Jósefsdal en hjóluðum ekki nema um einn og hálfan tíma.

Bolalda júlí

Fór með Gulla í brautina í bolöldu, á kawanum hans Bigga. Var í vandræðum með armpump og dugði ekki nema einn til tvo hringi í einu.