Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

23 May 2007

Álfsnes þriðjud. 22/5

Fór með Bigga og Hannibal upp í Álfsnes, Kjartan var kominn á staðinn. Biggi var að fara í fyrsta sinn í braut hér á Íslandi. Vorum frá c.a. 21-23 og höfðum allir gaman af nema Hannibal sem flaug vel á hausinn við stóra pallinn og var lemstraður eftir en vonandi óbrotinn þar sem hann á að hjóla á Klaustri á Laugardaginn. Spelkurnar hjá mér voru eitthvað að þvælast fyrir mér og þegar ég fór úr buxunum í skúrnum kom í ljós að mér hafði tekist að brjóta eitthvað stykki af þeim.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home