Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

20 December 2009

Reiðhöllin Víðidal sunnud. 20/12

Við Kjartan skelltum okkur á hjólaæfingu hjá VÍK í Reiðhöllini í Víðidal. Vorum rúmlega 15 sem keyrðum eftir braut sem mörkuð var með keilum og gerðum ýmsar æfingar eins og að hjóla standandi með vinstri hendina fyrir aftan bak eftir brautinni. Gulli og Helgi stýrðu þessu og þetta var bara gaman.