Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

03 July 2007

Bolalda mánud. 2/7

Fór með Kjartani og Bigga upp í Bolöldu, fórum af stað um átta, Gulli og Bjarni komu svo hálftíma síðar og vorum við að hjóla á slóðunum til um hálftólf. Geðveikt gott veður og gaman að hjóla þarna. Reyndi við brekkuna en komst ekki upp.

01 July 2007

Bolalda föstud. 29/6

Fór með Kjartani og Pálma upp í slóðana í Bolöldu. Pálmi var á mínu hjóli og ég á Kawanum hans Bigga. Ég var að fíla það í tætlur. Held bara að næsta hjól hjá mér verði KTM 250SXF.