Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

17 July 2008

Álfsnes miðvikud. 16/7

Fór með Kjartani og Danna upp í Álfsnes í gærkveldi. Brautin var geðveik og veðrið frábært. Prófaði hjólið hjá Danna og það var þvílíkt létt og þétt. Er orðinn alveg staðráðinn í að fá mér krossara í haust og selja endurohjólið. Ætli maður fái sér ekki bara 250sxf.