Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

06 September 2005

Set hér inn tíma á sólsetur og myrkur fyrir september
Sep SS Myrkur
1 20:45 21:38
10 20:13 21:03
20 19:37 20:25
30 19:0119:49

Bolöldu mánud 5/9

Fór með Hannibal í brautina í bolöldu í gærkveldi. Fórum úr bænum um sjö og tókum einn hring í endurobrautinni. Brautin skemmtileg en erfið, eða við ekki í góðu formi. Gjörsamlega búnir í höndunum eftir einn hring. Vorum svo í grifjunum fram til um 9 en þá var komið rökkur og orðið vel dimmt þegar við komum í bæinn.