Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

17 March 2009

KTM 200 selt

Jæja nú er KTM-ið selt og víst búið að fá ný plöst og alles. Gaurinn sem keypti það fór víst út í fjöru í fyrsta túr og datt þannig að hann braut eitthvað á sér löppina og hnéð í skrall þannig að hann er frá vinnu einhverja mánuði. Nú er bara að selja PW og svo spá í hjólakaup aftur. Er heitur fyrir KTM 450SX eða 250SX 2-stroke en við verðum bara að sjá til hvað fjárhagurinn leifir í þessu.