Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

21 November 2005

Mosó Laugard. 19/11

Fór í mosógryfjurnar með Kjartani, Hannibal og Bensa. Hannibal var með 200SX hjól að prófa. Efri hluti brautarinnar var bara drulla en neðri hlutinn í lagi. Tókum svo þó nokkuð af stökkum í lokin. Búinn að ákveða að fara út til Bretlands í mars og bjóða konunni á U2 í Boston 4. des þegar hún verður þrítug. Fékk miða niðri á gólfinu sem verður geðveikt. Bíllinn á að koma í vikunni, sem sagt allt að gerast.

04 November 2005

England

Hannibal hringdi í mig áðan frá Englandi en hann og Kjartan eru þar hjá www.ktmadventuretours.co.uk að hjóla í innanhúsbraut í dag og svo að endurast á morgun. Ekkert nema gaman hjá þeim. Maður verður bara að fara með næst.