Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

28 September 2006

Bolalda miðv.27/9

Fór með Hannibal, Kjartani og fjórhjólagenginu upp í Bolöldu. Brautin var lokuð en við fórum einhverja slóða þarna á svæðinu. Vorum ekki komnir upp eftir fyrr en rúmlega hálfsjö og vorum til um átta.

25 September 2006

Bolalda sunnud 24/9


Fór með Kjartani fyrst í Álfsnes, fórum einn hring en það var aðeins of mikil drulla þannig að við ákv. að drífa okkur í Bolölduna. Tókum Hannibal með og skemmtum okkur vel í brautinni í Bolöldunni. Vorum í c.a. 1 og hálfan tíma til rúmlega átta.
Setti fleiri myndir inn á http://hakon.smugmug.com/gallery/1932548

22 September 2006

Mynd af Súkkunni


Set hér inn mynd af súkkunni.

21 September 2006

Bolalda miðvikud.20/9

Fór með Hannibal og Kjartani í rigningu og roki upp í Bolöldu, brautin var lokuð en við fórum einhverja enduroslóða og reyndum við brekkuna góðu án árangurs. Vorum frá c.a. 17:30-19:30. Hjólaði allan tímann í sjóstakknum og ekki veitti af.

01 September 2006

Álfsnes fimmtud. 31/8

Fór með Kjartani og Hannibal í álfsnesið. Brautin var þurr og hörð. Hjólið virkaði fínt, mikill munur með demparana, allt miklu þéttara. Fórum eftir mat og þurftum að hætta fyrir tíu vegna myrkurs.