Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

20 April 2006

Bolalda Mánud. 17/4 (2.páskum)

Fór með Hannibal og Gulla upp í Bolöldu á Mánudaginn, var töluvert af snjó upp í Jósefsdal og í krossbrautinni sem er í gryfjunum. Gulli búinn að kaupa sér jeppa og þeir bræður búnir að panta tvö ný 400exc hjól.

01 April 2006

Mosó fimmtudag 30.mars

Fór með Pálma endurotúr út frá mosógryfjunum. Hittum Hannibal með þremur félögum á fjórhjólum en þeir fóru af stað á undan okkur. Fórum upp úr sjö og komum að bílunum um níu en þá var farið að rökkva vel.