Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

21 October 2007

Bolalda sunnud 21/10

Fór með Gulla og Kjartani í brautina, allt blautt en gott veður og fullt af fólki á svæðinu. Vorum bara í brautinni, ekkert enduro í þetta skiptið. Fór einu sinni á hausinn eftir stökk, setti öxlina í drulluna en hélt hjólinu í gangi. Alltaf gott að komast á hjólið.

15 October 2007

Bolalda sunnud 14/10

Fór með Kjartani upp í Bolöldu. Vorum í brautinni og fórum svo tvo eða þrjá hringi í whoppsunum upp í dal. Flaug á hausinn í einni beygjunni í brautinni, fram fyrir hjólið og er aðeins marinn eftir það. Veðrið var blautt og mikil drulla í brautinni á köflum en bara gaman að hjóla.

03 October 2007

Bolalda þriðjud. 2/10

Fór með Kjartani upp í Bolöldu, hættum um fjögur að vinna og fórum beint upp eftir. Hjóluðum í brautinni eitthvað og fórum svo einn hring í sandbrautinni upp í Jósefsdal. Ég hætti um hálfsjö en Kjartan var um hálftíma lengur. Smá vindur og úði og rigning voru mestallan tímann, og pollar í brautinni og hjáleið á einum stað. Ég var eitthvað stífur í byrjun en það lagaðist svo.