Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

28 April 2010

Álfsnes þriðjud. 27/4

Fór með Kjartani í Álfsnesið, vorum komnir upp úr hálfátta og vorum til hálftíu. Frábært veður og fínt rakastig í brautinni. Brautin var soldið röttuð og vúpsuð og fyrstu hringirnir voru erfiðir en svo var þetta bara gaman. Örfáir kaflar þar sem bleyta var og þar voru soldið djúp för. Nú þarf bara að fara oftar til að hita upp fyrir klaustrið.