Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

20 November 2008

Bolalda miðvikud. 19/11

Fór með Kjartani í Bolölduna, í fyrsta sinn sem er keyrt með ljósin í myrkri. Vorum komnir um átta og ég var í vandræðum með hjólið mitt. Fyrst var það of ríkt, stútaði kerti og hélt sér ekki í gangi í hægagangi, þegar ég hafði lagað það þá var of lítill vökvi á kúplingunni þannig að það dugði ekki að toga í hana nema stundum og því frekar leiðinlegt að hjóla þannig. Hjóluðum til c.a. hálftíu. Alveg hægt að hafa gaman af því að hjóla með þessi ljós. Kjartan var með sitt fest á stýrið og var bara mjög sáttur við það. Hjálmljósið hjá mér slökkti stundum á sér, ætli maður fjárfesti ekki bara í batteríi næsta vetur ef gengið verður eitthvað skárra þá. Hitt ljósið dugar þangað til.

17 November 2008

Grundarfjörður 14-16/11


Fór með Bigga, Hannibal, Kjartani, Gulla og Sverri til Grundarfjarðar. Fórum í brautina í Ólafsvík og í enduro út frá henni á laugardaginn. Hannibal tókst að detta á hausinn þegar hann var að labba að Bigga til að hjálpa honum og er eitthvað bólginn á honum putti, Bigga tókst að velta fjörhjólinu í brautinni og tveir teinar í afturgjörðinni á Kawanum hans brotnuðu. Það var kalt en mjög gaman. Á sunnudeginum var rok og rigning og ekkert hjólað eins og planað hafði verið, en keyrt fram hjá brautinni við GrundaAdd Imagerfjörð og þar voru tveir að hjóla.

02 November 2008

Motomos laugad 1/11

Fórum í motomos brautina í gærmorgun, ég og Hannibal vorum komnir upp í braut um 11 en þá var Kjartan kominn og svo kom Gulli soldið seinna. Brautin var drulla og klakar, ekki gaman til að byrja með en svo keyrðist hún til og það var það var mjög gaman að henni. Ég var kominn á bílnagla en þarf að laga jettunina á hjólinu því hjólið er mjög þvingað á háum snúning. Vonandi komumst við í það í vikunni.