Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

27 February 2007

Bolalda mánud. 26/2

Við Kjartan hættum að vinna um hálffimm og fórum upp í Bolöldu. Vorum í vandræðum með að koma mínu hjóli í gang, þarf að skipta um gorminn í startsveifinni. Náðum þó að lokum að íta því í gang. Vorum aðeins í brautinni sem var hörð og fórum svo upp í dalinn. Brekkan góða var með snjó í og var aðeins spólað upp hana og svo ætluðum við að kíkja í sandvúppsana en þar var bara klaki yfir öllu þannig að við fórum aftur niður í braut. Vorum til kl. hálfátta en þá var komið töluvert rökkur. Prófaði aðeins hjálmaljósið í brautinni en það slökknaði alltaf á því eftir smá stund, líklega fær það ekki nægan jafnan straum, þar sem batteríið hjá mér er handónýtt.