Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

16 August 2009

Fljótshlíð laugard 15/8

Fórum að smala í Fljótshlíðinni á krossurunum, fórum ég, Gulli, Biggi og Kjartan og fórum úr bænum um átta og komum aftur ég og Kjartan um sexleytið. Vorum að smala á melunum allt frá Stóra dímon og upp eftir að Fljótsdal. Helvíti gaman að keyra svona um allt og nóg af ám að fara yfir. Lenntum í mikilli rigningu í byrjun en svo rættist úr veðri og allt gekk vel. Gulli og Biggi stungu af áður en við komum fénu í fjárhúsið því að Gulli þurfti að fara í afmæli og Heiða var komin til Hellu að ná í hann.

10 August 2009

Bolaalda sunnud 9/8

Fór með Kjartani í enduro í Bolaöldu. Lögðum af stað um sjöleitið og hjóluðum til að verða 10. Frábært hjóla veður skýjað og logn. Moldarslóðarnir voru sleipir eftir rigningarnar undanfarið en sandurinn fínn. Fórum yfir í Bruggaradal og Gil andskotans og svo upp í Jósefsdal þar sem við hjóluðum hringi í sandinum.