Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

13 November 2004

Örfjölskyldutúr

Fórum aðeins á hjólin í dag, allt var blautt og sleipt. Hafsteinn stóð sig vel en Heiða vildi ekki hjóla mikið þar sem það var of sleipt. Fyrsta sinn sem hjólið fór á nýju kerruna og reyndist kerran vel. Eins og venjulega þegar Heiða fer að hjóla gleymdist myndavélin og því fær hún ekki mynd af sér inn á síðuna í þetta sinn.

06 November 2004


Fórum stuttan túr norður af litlu kaffistofunni í rigningunni í dag.


Ekki alveg nógu góð mynd af hjólinu hans Hannibals, reynum aftur næst.