Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

01 April 2009

KTM 450 SX 2003

Keypti "nýtt" hjól um daginn, setti PW upp í og notaði aurinn sem ég fékk fyrir 200 hjólið til að endurnýja hjólið. Keypti KTM 450SX árgerð 2003 sem Bensi hafði keypt sem eftirárshjól 2004 svo var það selt til Egilstaða og nú er ég fimmti eigandinn af því. Nú er bara að klára húsið og flytja þannig að maður hafi einhvern tíma til að leika sér á þessu.