Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

27 July 2009

Bolaalda sunnud 26/7

Fór með Kjartani, Gulla og Alla í Bolaölduna í gær, lögðum af stað um 15 úr bænum og ætluðum að taka enduro en ákváðum að kaupa miða í brautina og enduðum á að vera bara í henni til rúmlega sjö. Búið að snúa hringnum við og gera nýja palla og rithmakafla. Þetta var erfið braut en gaman að henni þó maður væri nú ekki mjög góður í henni, vantar kjarkinn til að láta vaða, ekki skrítið miðað við að það er mánuður síðan ég hjólaði síðast. Það kemur með tímanum.