Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

06 January 2008

Þorlákshöfn sunnud. 6/1


Fór með Bigga og Kjartani upp í Þorlákshöfn. Fyrsta sinn sem við hjólum þar og fyrsta sinn sem þrjú hjól voru sett í hiaceinn. Sandbraut með lítið af pöllum en mikið af beygjum og soldið af woopsum. Geðveikt gaman, fórum af stað um hálfellefu og vorum til um þrjú á staðnum. Fullt af fólki að hjóla og frábært veður.