Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

01 January 2010

Hafravatn fimmtud. 31/12

Lúlli hringdi í mig og sagði að það ætti að mæta á Hafravatn og hjóla á ís, þannig að ég fór og keypti nokkra nagla og notaði ísskrúfur sem ég átti í skúrnum til að græja hjólið fyrir ísinn. Svo mættum við Kjartan á ísinn og þar var fullt af liði og svaka gama. Ég var með framdekkið fullt af skrúfum og svo stutta nagla í afturdekkinu ásamt eitthvað af skrúfum. Nú þarf ég að fá mér eitthvað fleiri nagla í afturdekkið því það var ekki nógu vel neglt á köntunum og þurfti lítið til að ég skrikaði til. Reddum því í næstu viku og vona að færið haldist eitthvað áfram.