Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

17 February 2009

Snæfellsnes lau-sun 14-15/2

Fór með Kjartani og 16 öðrum slóðavinum í þorrablótsferð á Snæfellsnesið. Fórum að stað snemma á laugardagsmorni og vorum að byrja að hjóla um 11 leytið og var hjólað fram að kvöldmant á laugardeginum. Ég var aðalega í fjörunni og í sandhólum við fjöruna en flestir voru á trellum og voru í ísakstri. Vorum samt þrír sem vorum ekki á trellum á laugardeginum. Á sunnudeginum vorum við að hjóla frá c.a. 11 til 14 í fjörunni en það voru ekki margir sem fóru á hjólin á sunnudeginum. Sprengdi hjá mér að framan við að keyra yfir grjótikafla sem voru á nokkrum stöðum í fjörunni og vorum við alls þrír sem sprengdum að framan. Alls var hjólið keyrt um fjóra tíma þarna og voru brenndir yfir 20 lítrar af bensíni hjá mér.