Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

29 June 2006

Bolalda miðvikud. 28/6

Ég, Kjartan og Hannibal hættum um kl. 15 í vinnunni í gær og skelltum okkur upp í Bolöldu, ætluðum á Selfoss en leist ekkert á veðrið, var spáð rigningu þannig að við prófuðum brautina í Bolöldunni. Mér tókst að fara framfyrir mig í fyrstu lotu í brautinni og braut annað stefnuljósið af hjólinu hjá mér. Mikið var af grjóti í brautinni og mikið af lausu efni í beygjunum en eftir nokkra hringi var þetta bara gaman. Fórum líka í enduroslóðana og enduðum með að reyna að elta Einar Sig. upp brekku inni í Jósefsdal. Hann var þar með hóp í endurokennslu og gaf okkur nokkra punkta sem þarf að æfa á næstunni. Markmiðið er að komast upp þessa brekku fyrir lok sumars.

26 June 2006

Álfsnes Sunnud. 25/6

Fór með Gulla upp á Álfsnes í gær. Vorum um 2 tíma í brautinni sem er enn blaut og þurfti að keyra út úr henni á einum stað. Það voru bara tveir aðrir í brautinni sem var fínt.

05 June 2006

Mosó Laugard. 3/6

Fór með Gulla og Bjarna(á nýja 400exc-inu) frá gryfjunum upp í kjósaskarðið. Byrjuðum á að fara yfir ánna og tókst mér enn aftur að drekkja hjólinu mínu þar. Vorum örugglega um klukkutíma að koma því í gang aftur. Fórum svo alveg upp á skarðið og snerum við þar. Gulli reyndi svo að stökkva yfir hraðahindrun á leiðinni heim með þeim afleiðingum að hjólið hans flaug af kerrunni og á bílinn hans.