Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

14 May 2007

Landeyjar laugard-sunndu 12-13/5

Fór með Heiðu á KTM 640 Adventure hjólinu hans Kjartans. Fórum af stað um hádegi á laugardag og fórum upp á Þingvelli, svo var haldið niður í Grímsnes og svo upp að Skálholti og fram hjá Laugarás, svo fórum við niður Flúðarveginn niður á hringveg og niður á Hellu. Þar horfðum við aðeins á endurokeppnina þar og fórum svo að Hvolsvelli og svo niður að bænum þar sem við gistum. Daginn eftir fórum við aðeins um Landeyjarnar og svo upp á hringveg og að Villingarholtshreppi þar sem við keyrðum suður og fórum svo í sund á Stokkseyri áður en við fórum heim. Frábært frí og snilld að vera á svona ferðahjóli. Spurning um að fá sér 950/990 sem næsta hjól.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home