Hjóladagbókin

Hugmyndin er að setja hér myndir af hjólaferðum og sitthvað annað sem mér dettur í hug.

16 August 2009

Fljótshlíð laugard 15/8

Fórum að smala í Fljótshlíðinni á krossurunum, fórum ég, Gulli, Biggi og Kjartan og fórum úr bænum um átta og komum aftur ég og Kjartan um sexleytið. Vorum að smala á melunum allt frá Stóra dímon og upp eftir að Fljótsdal. Helvíti gaman að keyra svona um allt og nóg af ám að fara yfir. Lenntum í mikilli rigningu í byrjun en svo rættist úr veðri og allt gekk vel. Gulli og Biggi stungu af áður en við komum fénu í fjárhúsið því að Gulli þurfti að fara í afmæli og Heiða var komin til Hellu að ná í hann.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home